Ólafía Ólafsdóttir lgf., og Lögheimili Eignamiðlun ehf. kynna frábært fjölskylduhús við Ósbraut 5, 250 Garði, Suðurnesjabæ. Eignin Ósbraut 5 er skráð sem hér segir hjá FMR:
Eign 226-3483, birt stærð 232.8m
2. Íbúðrhlutinn er 158,2m
2, bílskúr 38,1m
2 og 36,5m
2 tómstundarými inn af bílskúr en með sér inngangi af sólpalli.
Eignin Ósbraut 5 er timbureiningahús á steyptum sökkli og samanstendur af anddyri, eldhúsi, stofu /borðstofu, stofu, þremur svefnherbergjum, baðherbergi og auka salerni, þvottahúsi, innbyggðum bílskúr og rými aftan við bílskúr með sér inngangi. Sólpallur í suðurátt.
Anddyri: Sér inngangur inn í anddyri með fatahrislum.
Eldhús: Stórt og veglegt eldhús með borðstofu þar sem útgengt er á sólpall.
Stofa: Stofa í framhaldi af borðstofu.
Hjónaherbergi: Veglegt hjónaherbergi með góðum fataskápum og útgengt er á sólpall.
Baðherbergi: Stórt baðherbergi, með innréttingu, salerni, horn baðkari og sturtuklefa.
Barnaherbergi: Tvö barnaherbergi og annað þeirra er inn af forstofu. Bæði herbergin eru með fatahirslum.
Þvottahús: Þvottaaðstaða með innréttingu er á milli íbúðar og bílskúrs.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr. Innangengt er í bílskúr frá þvottarými og að utanverðu við aðalinngang.
Tómstundarými: Inn af bílskúr er 36,5m2, merkt tómstundir á grunnmynd hússins, rými með sér inngangi af sólpalli. Í rýminu eru tvö herbergi og alrými, snyrting með salerni og innréttingu með handlaug. Mögulegt er að útbúa sér studioíbúð með sér inngangi.
Gólfefni: Parket og eða flísar er á öllum gólfum nema í bílskúr og tómstundaherbergi en þar er steypt, mynstrað gólf.
Sólpallur: Stór, afgirtur, sólpallur sem snýr í suðurátt, með heitum potti og geymsluskúr.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi miðast við hlutfall af heildarfasteignamati - almennt 0,8 % , 04% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Nánari upplýsingar veitir Ólafía Ólafsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8988242, tölvupóstur [email protected]