Ég er Austfirðingur í húð og hár en bý í Reykjavík með manninum mínum og börnunum okkar. Ég hef mikinn áhuga á heilsu og hreyfingu og einnig samfélagsmálum, byggingu og hönnun húsa, matargerð og ferðalögum.
Áhugi minn á fasteignum og öllu því tengdu kviknaði þegar við fjölskyldan byggðum hús og seldum. Það ferli var lærdómsríkt og skemmtilegt en jafnframt krefjandi og í kjölfarið ákvað ég að hefja nám til löggildingar fasteignasala haustið 2022.
" class="worker-details__facebook" target="_blank">