** Eignin er seld með fyrirvara um fjarmögnun**
Lögheimili Eignamiðlun kynnir í einkasölu: Þorrasali 5-7. 201 Kópavogi fallega og vel skipulagða fjögurra herbergja endaíbúð með sérinngangi á jarðhæð ásamt sér afgirtum lokuðum ca. 25 fm palli sem snýr í suður. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu og sér geymsla í sameign. Þá er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameigninni. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 116,2 fm, þar af er íbúðin 106,9 fm og geymslan 9,3 fm. Húsið málað að utan sumarið 2022. Búið er að draga rafmagn að bílastæði í bílageymslu fyrir rafmagnsbíl. 90 cm hurðar og því hjólastólavæn íbúð. Nánari lýsing - íbúð 101:
Forstofa: Rúmgóð, með flísar á gólfi og fataskáp. Gluggi í rýminu.
Eldhús: Parket á gólfi. Fallegt hvít eldhúsinnrétting. Flísar á milli efri og neðri skápa. Bakaraofn og helluborð.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými. Parket á gólfi. Frá stofunni er útgengt út á timburverönd. Frá stofu og timburverönd er fallegt útsýni yfir golfvöll GKG.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og rúmgóðir fataskápar.
Barnaherbergi 1: Parket á gólfi og fataskápur.
Barnaherbergi 2: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtu. Hvít baðinnrétting, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Nýleg þvottahús innrétting og tæki í vinnuhæð. Skolvaksur.. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Annað: Íbúðin er mjög vel staðsett, en stutt er í Salaskóla, leikskólann Fífusalir, Salalaug, heilsugæslu, verslun Nettó og golfvöll Kópavogs og Garðabæjar.
Allar nánari upplýsingar veitir:Heimir Bergmann Löggiltur Fasteigna og skipasali í síma 630- 9000 og tölvupóstur: heimir@logheimili.is Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 16 ára starfi við fasteignasölu á Íslandi. Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við mig eignum í sölu- eða leigumeðferð. Hringdu núna í síma
630-9000 og pantaðu tíma fyrir þína eign.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Lögheimili eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Ábyrg þjónusta í áratug. Lögheimili Eignamiðlun var stofnuð 2007. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum