Vallakór 2, 203 Kópavogur
73.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
93 m2
73.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2014
Brunabótamat
53.630.000
Fasteignamat
68.100.000

Ný yfirfarin íbúð á efstu hæð - endaíbúð - yfirbyggðar 23,1fm svalir í suður sem eru ekki inn í skráðum fermetrafjölda.
Íbúðin ásamt geymslu er samtals 93,2fm- geymslu er hægt að nýta sem vinnuaðstöðu eða tómstundarými.
Opnanlegur gluggi á geymslu. Stæði fylgir í hálf opinni bílageymslu

Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali sími 845 7445- gudrun@logheimili og Lögheimili eignamiðlun ehf. kynna:

Nýyfirfarin, falleg og björt 3ja herbergja endaíbúð á efstu hæð (2. hæð) í húsinu Vallakór 2a, Kópavogi.  Eignin er skráð í fasteignaskrá 93,2 fm þar af er um 18 fm geymsla/tómstundarými/vinnuaðstaða. Í íbúðinni eru glæsilegar suðursvalir sem telja 23,1 fm.  Með fylgir stæði í hálf opinni bílageymslu.  Að auki eru dekkja, vagna- og hjólageymslur í sameign.

Eignin:
Eignin er samtals 93,2 fm, íbúðin 75,2 fm, geymsla 18 fm auk yfirbyggðra suðursvala alls skráðar 23,1 fm sem ekki er inni í heildarfermtratölunni skv. Þjóðskrá Íslands.

Nánarí lýsing.
Forstofa:  Gengið er inn i forstofu frá svalagangi. Forstofan er flísalögð með góðum fataskáp.
Svefnherbergin eru tvö: Skápar í báðum herbergjum og parket á gólfum.
Alrými/stofa/eldhús: Björt og falleg stofa. Opið er á milli eldhúss og stofu auk þess sem þvottahús íbúðarinnar er inn af eldhúsi. Út frá stofunni er gengið út á risastórar yfirbyggðar svalir til suðurs sem verður eins og framlenging á stofunni. Í eldhúsi er helluborð og bakarofn.
Svalir: Yfirbyggðar 23,1fm svalir með lausum tréflísum á gólfi sem fylgja.
Baðherbergi:  Fallegt baðherbergi, fllísalagt i hólf og gólf með rúmgóðri sturtu, nýju upphengdu salerni auk vaskinnréttingar og speglaskáp og speglaveggjum.
Þvottahús: Þvottahús innan íbúðar. Gengið inn í þvottahús úr eldhúsi.
Geymsla: Geymslan er 18fm á jarðhæð og hefur hún verið útbúin sem viðbótarherbergi með gólfefnum og opnanlegum glugga. Ný spörsluð og máluð og harðparket á gólfi (endageymsla á jarðhæð). Hægt að nýta sem tómstundarými, heimaskrifstofu, líkamsræktaraðstöðu, auka svefnherbergi osfrv.
Bílastæði:  Um er að ræða stæði í hálf opinni bilageymslu sem fylgir eigninni.
Sameign:  Grasblettur á milli húsanna ofan á bílageymslu, hjóla, vagna og dekkjageymslur.  Um er að ræða lyftuhús.  Teppalagður stigagangur.
Gólfefni eignarinnar: Fallegt parket er á herbergjum og stofu, flísar á baði, þvottahúsi og í forstofu. Gólfefni geymslu: Harðparket.

Staðsetningin er einstök.  Stutt í alla þjónustu, verslanir, skóla, sundlaugar og íþróttaaðstöðu af bestu gerð.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,4 - 0,8% af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir einkahlutafélög.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - Sjá nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð. 




 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.