Þorsteinsgata 8, 310 Borgarnes
79.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
6 herb.
203 m2
79.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1965
Brunabótamat
77.350.000
Fasteignamat
64.200.000

Fjölskylduvænt einbýlishús í Borgarnesi - Vinsæl og eftirsótt staðsetning - Stúdíóíbúð sem hægt væri að leigja út

Lögheimili eignamiðlun og Sjöfn Hilmarsdóttir, lögfræðingur og aðstoðarmaður fasteignasala og Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali, auglýsa til sölu: Þorsteinsgötu 8, 310 Borgarnes, nánar tiltekið eign merkt 01-0101, fastanúmer 211-1851 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindi. 

Bókið skoðun hjá Sjöfn Hilmarsdóttur í síma 691-4591 eða á netfangið [email protected]

Almenn lýsing:
Þorsteinsgata 8 er steinsteypt einbýlishús, byggt árið 1965 og er að hluta til á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Heildarstærð hússins skv. FMR er 203,3 fm, þar af er íbúð á aðalhæð 131,7 fm, kjallari 42,9 fm og innbyggður bílskúr 28,7 fm. Eignin hefur að sögn seljenda fengið gott viðhald og margt verið endurnýjað. Innra skipulagi hússins hefur verið breytt töluvert frá upphaflega skipulagi. Núverandi skipulag: Íbúð á aðalhæði, anddyri, þvottahús, gestasalerni, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofa og eldhús. Stúdíóíbúð í kjallara hefur sérinngang, eitt alrými með afmarkaða svefnaðstöðu og sér salerni. Tvær geymslur er í kjallara, hægt að nýta aðra til stækkunar á íbúð og mögulega hluta af hinni. Bílskúr er innbyggður, bílastæði er fyrir tvo bíla fyrir framan bílskúr. Lóðin er leigulóð, skráð stærð hennar er 855 fm. Lóðin er afmörkuð að hluta með steyptum lágum kantrii götumegin. Bakatil á lóð er skjólgóð timburverönd. Staðsetningin eignar er einstaklega hentug og í nálægð við margvíslega þjónustu, má þar nefna íþróttamannvirki, sundlaug, grunnskóli, menntaskóli og verslunarkjarna sem er aðeins í um 2- 5 mínútna göngufæri. 
 

Nánari lýsing:
Inngangur: Tveir inngangar, að framan götumegin og frá bakgarði.
Anddyri: Opið fatahengi með skóhirslu. Ljósar flísar á gólfi. 
Gestasalerni: Vegghengt salerni með flísalögðum klósettkassa, handlaug á vegg og speglaskápur þar fyrir ofan. Mósaíkveggflísar eru á frá gólfi og að hálfa til lofts. Flísar á gólfi
Þvottahús: Rúmgott þvottahús. Innrétting með vaski, efriskápar og snúrur. Gólf er flísalagt
Hol: Myndar alrými með borðstofu og stofu. Eikarparket á gólfi.
Eldhús: Eikarinnrétting með ljósri borðplötu, veggofn, helluborð, háfur og tengi fyrir uppþvottavél. Gott skápapláss. Borðkrókur. Veggflísar milli innréttingar. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa mynda rúmgott og bjart alrými. Útgangur er úr stofu út á rúmgóða timburverönd. Eikarparket á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Innskot fyrir stóran skáp. Eikarparket á gólfi.
Herbergi I: Rúmgott herbergi með stórum fataskáp. Eikarparketá gólfi.
Herbergi II: Fataskápur. Eikarparket á gólfi. 
Herbergi III: Fataskápur. Eikarparket á gólfi. 
Baðherbergi: Hvít innrétting með handlaug tveimur skúffum og speglaskáp fyrir ofan handlaug. Stór nýlegur skápur. Gólfsalerni. Opin sturta með gler rennihurð. Handklæðaofn. Opnanlegur gluggi. Veggir að hluta flísalagðir (við sturtu og handlaug) en annars málaðir. Flísar á gólfi. 

Stúdíóíbúð í kjallara: Stúdíóíbúð er í kjallara þar sem svefnaðstaða er á afmörkuðu svæði inn af opnu rými þar sem gengið er inn. Salerni er í íbúðinni. Ekki hefur verið sett upp sturtuaðstaða né eldhúsinnrétting en sá möguleiki er til staðar. Parket á gólfi nema á salerni þar sem gólf er flísalagt.

Bílskúr: Bílskúrinn er 28,7 fm með rafmagni, köldu vatni, þremur gluggum og rafmagnshurðaopnara. Bílastæði fyrir tvo bíla er fyrir framan bílskúr. Tengi fyrir rafmagnsbíl getur fylgt.

Lóð/garður: Lóðin er 855 fm að stærð. Að framan er steyptur kantur að götuhlið og frá bílskúr að götu. Fánastöng er í garði. Malarplan er fyrir framan bílskúr, tvö bílastæði. Hellulagður göngustígur frá götu að aðalinngangi og meðfram húsi að kjallara. Rúmgóð timburverönd er í bakgarði með skjólvegg beggja vegna og því mjög skjólsamt. Tré, runnar og grasflöt í garði sem ekki þarfnast mikillar umhirðu.   

Annað: 
Lofthæð og birtuskilyrði innan íbúðar góð.
Sorpskýli framan við hús.


Framkvæmdir að sögn seljanda:
Fataskápar í húsinu voru keyptir 2023 og eru frá IKEA
Nýjar innréttingar á baði árið 2023
Nýjar innihurðar árið 2022 og eru frá Húsasmiðjunni.
Þvottahús endurnýjað að hluta árið 2021, m.a. skipt um gólfeni og sett innrétting með vaski.
Eldhúsinnrétting frá IKEA sett upp árið 2007.
Forhitari fyrir neysluvatn settur árið 2007.
Dregið var inn nýtt rafmagn og skipt um alla tengla árið 2007
Þak endurnýjað 2005, skipt var um borðaklæðningu, ull, klæðningu.
Nýtt gler í alla glugga nema tvo glugga í stofu sem snúa í bakgarð árið 2005
Vatns - og ofnalagnir endurnýjaðar 2005

Í söluyfirliti er að finna nánari lýsingar og ítarlegri upplýsingar um eignina - sendið á [email protected] til söluyfirlit sent.


Allar nánari upplýsingar veita:

Sjöfn Hilmarsdóttir
Lögfræðingur og aðstoðarmaður fasteignasala
Sími 691-4591 eða á netfangi [email protected]

Guðrún Hulda Ólafsdóttir
Lögmaður og löggiltur fasteignasali
Sími 845-7445 eða á netfangi [email protected]


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.