Lögheimili eignamiðlun og Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali, sími 845-7445 / [email protected],
kynnir í einkasölu: Mosaveg 9, Bláskógabyggð.Einstaklega fallegur, velumgenginn og vel staðsettur sumarbústaður byggður 2006 við Mosaveg 9 í landi Úthlíðar í Biskupstungum í Bláskógabyggð, hann stendur á 4.549 fm leigulóð. Bústaðurinn er 85,3fm á einni hæð með góðri lofthæð - 3 svefnherbergi í bústaðnum, eldhús, baðherbergi og stofa auk þvottarýmis. Geymsluskúr á palli óskráður. Verönd úr timbri skráð 95,8 fm skv. fmr.
Bústaðurinn er fullbúinn með heitu, köldu vatni og rafmagni.
Nánari lýsing:Bústaðurinn er með þremur svefnherbergjum velbúinn rúmum og svefnaðstöðu fyrir allt að 7.
Svefnherbergi: 3 - tvöfaldar neðri kojur í tveimur herbergjum, einfaldar efri kojur og tvöfalt rúm í hjónaherbergi.
Eldhús: Falleg hvít innrétting í eldhúsi, helluborð og bakarofn. Opið inn í stofu
Baðherbergi: Með uppengdu salerni og vaskinnréttingu.
Gólfhiti
Þvottarými: í sérrými við innganginn.
4-5 fm geymsluskúr á palli sem er óskráður fylgir með.
Bókið skoðun hjá Guðrúnu Huldu Ólafsdóttur í síma 845-7445 eða á netfangið [email protected]Viðhald eignarinnar:
2023. Borið á húsið og pallinn.
2021. Stýringar settar fyrir gólfhita.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Hulda Ólafsdóttir
Lögmaður og löggiltur fasteignasali
Sími 845-7445 eða á netfangi
[email protected]Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skila. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum nr. 40/2002 um fasteignakaup er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalar sem starfa á Lögheimili eignamiðlun fasteignasölu benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá eða sbr. kauptilboð.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.