Kársnesbraut 21C, 200 Kópavogur
119.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
4 herb.
168 m2
119.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1989
Brunabótamat
78.300.000
Fasteignamat
112.400.000

Fallegt og miikið endurnýjað raðhús á 2 hæðum og bílskúr.  3 svefnherbergi, suður-verönd með geymsluskúr.

Lögheimili eignamiðlun og Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali, sími 845-7445 / [email protected] , kynnir í einkasölu: Kársnesbraut 21C, Kópavogi.  

Bókið skoðun hjá Guðrúnu Huldu Ólafsdóttur í síma 845-7445 eða á netfangið [email protected]

Fasteignin:  Mikið endurnýjað sérbýli á vinsælum stað á Kársnesi. Um er að ræða eign á tveimur hæðum og er heildarfermetrafjöldi eignarinnar 168,4fm sem sundurliðast svo:  Neðri hæð 79,2fm, efri hæð 66,4fm og bílskúr 22,8fm.

Nánari lýsing: 
Aðalhæð:
Forstofa: Fataskápur. Flísar á gólfi. 
Forstofusalerni:  Salerni, vaskur og gert ráð fyrir hægt sé að koma fyrir sturtu.
Eldhús er afmarkað að hluta, með  svartri innréttingu og mjög góðu skápaplássi. Öll eldhústæki geta fylgt þ.m.t. ísskápur og uppþvottavél.  Flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa: Bjart og opið alrými. Útgengi út í skjólgóða suður timburverönd með skjólveggjumí.

Efri hæð:
Hol: Rúmgott hol.  Gestasalerni og fataskápur með speglahurðum.
Herbergi I: Rúmgott herbergi með góðum fataskáp. Útgeng út á svalir. Parket á gólfi
Herbergi II: rúmgott herbergi sem í dag er nýtt sem setustofa/tölvurými.  Fataskápur er í rýminu.. Parket á gólfi. 
Herbergi III: Gott herbergi sem í dag er nýtt sem fataherbergi.  Parket á gólfi. 
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með ljósri innréttingu, vönduðu Philip Starck baðkari og sturtu.  Gluggi á baðherbergi. Flísalagt í hólf og gólf.

Gólfefni:  Flísar á neðri hæð, parket á efri hæð að undanskyldu baðherbergi þar sem eru flísar á gólfi.
Þvottahús/geymsla/bílskúr:  Inn af eldhúsgangi er innangengt í geymslu og þvottahús auk bílskúrs.  Mjög gott hellulagt bílaplan fyrir framan bílskúr.

Viðhald eignarinnar:
2024.  Skipt verður um ofna á neðri hæð.  Stendur yfir um þessar mundir erum að skipta í stofu og vc niðri. hinum ofnunum niðri var skipt út 2008.
2024.  Gluggar og hurðar málaðar að innan
2022.  Hús málað að utan - steinninn
2022.  Hús málað að innan
2022.  Stigi parketlagður upp á efri hæð
2020.  Fibercoat Fibres sett yfir nagla á  þaki.
2017.  Þakkantur klæddur og málaður
2016/2017. Pallur og skúr reist í bakgarði.
2013.  Gestasnyrtingu breytt í forstofu.  Var eitt rými fatahengi og gestasalerni.  Sett nýtt salerni, vaskur, blöndunartæki, fatahengi með speglahurðum.
2012.  Eldhúsinnretting endurnýjuð og ofn Mile, strót helluborð(span) og vifta

Viðhaldssagan ber þessi merki að eignin hafi fengið gott viðhald í gegnum árin.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Hulda Ólafsdóttir
Lögmaður og löggiltur fasteignasali
Sími 845-7445 eða á netfangi [email protected]



Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skila. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga nr. 40/2002 um fasteignakaup  og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum nr. 40/2002 um fasteignakaup er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalar sem starfa á Lögheimili eignamiðlun fasteignasölu benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá eða sbr. kauptilboð.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.